Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
7.2.2008 | 21:41
Músíkárið 2008
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.2.2008 | 22:26
Plötubúðin Mid Price Listi 2008
Þið getið pantað í gegnum pöntunarfélagið Plötubúðina!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2008 | 20:28
DYLAN Á VORBLÓT
Dylan kemur kannski | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.2.2008 | 20:20
Músíkmiðlar nú og þá
Ég er ekki nógu sannfærður um að niðurhal sé að drepa tónlistina, CD diskinn eða aðra sölumiðla. Ég man vel eftir baráttunni Home Taping Is Killing Music, sem varð reyndar til þess að Alþingi (Ragnhildur Helgadóttir fyrrum ráðherra á heiðurinn af því ef mér bregst ekki minni) samþykkti upptökugjald á tómar kassettur sem greiddist til íslenskra hljómplötuútgefenda!!!!! (Aðallega til Steinars, Skífunnar og Grammsins var það ekki annars? Og gerir kannski enn þó nöfnunum hafi fækkað og þau breytst). OG viti menn þessi löggjöf er enn við líði! Og nú greiðist það af diskum og öðrum upptökumiðlum!
Nei ég held miklu frekar að léleg þjónusta í hljómplötuverslunum, vanþekking þar og í útvarpi sé sökudólgur númer 1, ef salan er að minnka. Síðan má ekki gleyma því að áherslan hefur verið á yngstu kaupendurna (hvers vegna?) og á íslenska útgáfu sem gefur mun meira af sér vegna minni framleiðslukostnaðar en áður þegar vinyllinn var og hét. Og auðvitað má ekki gleyma því að hátt verð erlendis, flutningskostnaður, háir tollar, hár vsk, hafa haft sín áhrif þó það sé komið í nokkuð gott horf í dag. Og allt þetta hefur haft í för með sér að álagningin er ekki góð og afkoma hljómplötuverslununar á Íslandi gjörsamlega vonlaus nema einhver önnur sala komi til eða annar rekstur að auki.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.2.2008 | 19:43
Plötur ársins 2007 - mínar!
1. RAY DAVIES - Working Man's Café
(hrein snilld aftur hvert lagið öðru betra)
2. JOHN FOGERTY - Revival
(annar öldungurinn að sanna sig)
3. NEIL YOUNG - Chrome Dreams II
(Loksins góð plata frá Kanadamanninum)
4. ELLIOTT MURPHY - Coming Home Again
(Murphy er ennþá í útlegt í París - ennþá efnilegur Dylan)
5. LUCINDA WILLIAMS - West
(Dálítið utangátta ennþá hvorki country blues popp eða rokk, en eitthvað svo heillandi)
6. BRUCE SPRINGSTEEN - Magic
(Hann hefur ekki sannfært mig á undanförnum árum, en hann kann þetta ennþá að búa til lag og texta og rokka)
7. GRAHAM PARKER - Don't Tell Columbus
(Hann náði aldrei sömu vinsældum og Elvis Costello, en hann skilar markvisst góðum plötum, frábærum textum og bros á vör)
8. STEVE EARLE - Washington Square Serenade
(Earle byrjaði sem gítarpikkari í Nashville ef ég man rétt. Gerði nokkrar ok plötur, lenti í slagtogi við Pogues, fór að drekka ótæpilega, taka þátt í mótmælum, lenti í fangelsi meira að segja. En kom til baka sem ótrúlegur breyttur lagasmiður sem er hægt að líkja við ýmsa en þó ekki. Þessi plata er enn einn snilldin frá honum, ekki country ekki rokk ekki ... en allt þó)
9. EAGLES - Long Road Out Of Eden
(Góð plata - góð lög frábærir söngvarar - gott "Easy listening" í bílnum)
10. NICK LOWE - At My Age
(Já já einn enn gamlinginn - en hvað með það. Næm og rómantísk plata)
N.b. Ég á Arcade Fire og fullt af fleiri "topp" plötum. Ég downloadaði líka flestum efnilegum nýjum listamönnum keypti þá sem ég vildi kynnast betur en 2007 skilað mér bara ekki mörgum nýjum áhugaverðum listamönnum. Reyndar er ég líka orðinn íhaldsamari. Besti nýliðinn var Mika (!)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar