Músíkárið 2008

Það eru farið að gefa út plötur þetta árið. Venju samkvæmt eru fyrstu 2 mánuðir rólegir þar sem sala er oftast minni á þessum tíma, en á móti er auðveldara að slá í gegn. Ég er búinn að fá mér nýju Ringo Starr plötuna á USB lykli! Ringo vann hana að mestu með Dave Stewart úr Eurythmics. Titillagið Liverpool 8 er að hluta til tileinkað því að Liverpool er menningarborg Evrópu í ár og spilar Ringo nokkra rullu þar. Annars er von á plötum frá British Sea Power, sem hafa fengið góða dóma, Robin Trower & Jack Bruce, Coal Porters (með Chris Hillman), k.d. lang, Sheryl Crow, The Feeling, Gary Louris (Jayhawks), Jackson Browne, Steve Winwood, Van Morrison, Mike Oldfield, Daniel Lanois & R.E.M. svo nokkrir séu nefndir af þeim sem ég fylgist með. Merkilegar endurúgáfur eru t.d. Buddy Holly (Not Fade Away Complete 1957 Recordings), Nick Lowe (Jesus Of Cool með 10 aukalögum!) The Complete Motown Singles Volume 9: 1969 (6 diskar!) 2ja diska Deluxe útgáfur af Elton John og Tumbleweed Connection frá Elton John, 7 endurútgáfur með reyndar bara 1-2 aukalögum frá Van Morrison og síðast en ekki síst safnplata frá Dory Previn The Art Of Dory Previn sem var hreint stórkostleg og stenst fullkomlega tímans tönn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér datt í hug þegar ég las hvort þarna væri í hnotskurn það sem ég las um þróunina í útgáfubransanum, þ.e. að útgáfurisarnir færu að snúa sér meira að endurútgáfum. Nýtt efni yrði aftur á móti í meira mæli gefið út framhjá útgáfurisunum, á netinu, og selt þar.  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband